Tónlistarhátíð

10.-16. mars 2024

SKRÁNING 5.-19. FEBRÚAR

Lógó Músíktilrauna

Mættu í hörpu

Taka Þátt

Fréttir

4. undankvöld

Af fjórða undanúrslitakvöldi Músíktilrauna í Hörpu komst áfram hljómsveitin Chögma, sem var valin áfram af

lesa frétt

3. undankvöld

Þriðja undankvöld Músíktilrauna lét sko heyra í sér! Glysrokk, harðkjarni, hip hop og popp. Salurinn

lesa frétt

Viltu vera með?

Viltu vita meira um hvernig skráning fer fram eða hvað hljómsveitir þurfa að flytja mörg lög? 

Skráning fer eingöngu fram á rafrænan hátt á vefsíðunni og verða 40-50 hljómsveitir valdar til þátttöku. Opnað verður fyrir umsóknir 5. febrúar og mun skráning standa fram til 19. febrúar 2024.

Þátttökugjald er 3.800 krónur fyrir hvern einstakling/hljómsveitarmeðlim árið 2024.

Músíktilraunir eru ætlaðar ungu fólki á aldrinum 13-25 ára. Framkvæmdarnefnd Músíktilrauna áskilur sér þann rétt að hafna hljómsveitum um þátttöku ef: sýnishorn(demo) það sem berst stenst ekki tónlistarlegar lágmarkskröfur sem gerðar eru til keppninnar, þátttökugjald hefur ekki verið greitt fyrir tilskilinn tíma eða af öðrum ástæðum.

Á hverju undankvöldi skal hljómsveit flytja tvö frumsamin lög. Heildartími þeirra skal ekki vera meiri en 10 mínútur. Á úrslitakvöldi flytur hver hljómsveit þrjú frumsamin lög. Ekki er skylda að spila sömu tvö lögin frá undankvöldum í úrslitum. Heildartími þeirra skal ekki vera meiri en 12-15 mínútur.

Á hverju undankvöldi velur salur eina hljómsveit/ tónlistaratriði áfram í úrslit og dómnefnd jafnframt eina hljómsveit/tónlistaratriði.

 

Athugið að þegar öllum undankvöldum er lokið hefur dómnefnd möguleika á að velja hljómsveitir/ tónlistaratriði áfram aukalega í úrslit. Möguleiki er því fyrir hendi að komast áfram þrátt fyrir að hafa ekki farið áfram á sínu undankvöldi.

 

Þetta verður tilkynnt á heimasíðu tilraunanna að loknum öllum undankvöldunum og einnig verður hringt í þær hljómsveitir/tónlistarfólk sem um verður að ræða.

 

Á úrslitakvöldi er það eingöngu dómnefnd sem velur vinningshafa, en salur og áheyrendur kjósa í símakosningu um Hljómsveit Fólksins.