Reglur og markmið

Reglur:

  • Skráning fer eingöngu fram á rafrænan hátt á heimasíðunni frá 5. – 19. febrúar, 2024 og verða 40 – 50 hljómsveitir valdar til þátttöku.
  • Þátttökugjald er 3.800 kr. fyrir hvern einstakling árið 2024.
  • Skráning telst ekki gild nema greiðsla hafi borist Músíktilraunum fyrir lokafrest.
  • Mjög mikilvægt er að setja nafn þátttakanda og  hljómsveitar sem skýringu þegar greitt er í heimabanka/banka.
  • Á hverju undankvöldi skal hljómsveit flytja tvö frumsamin lög. Heildartími þeirra skal ekki vera meiri en 10 mínútur. Á úrslitakvöldi flytur hver hljómsveit þrjú frumsamin lög. Ekki er skylda að spila sömu tvö lögin frá undankvöldum í úrslitum. Heildartími þeirra skal ekki vera meiri en 12 – 15 mínútur.
  • Á hverju undankvöldi velur salur eina hljómsveit / tónlistaratriði áfram í úrslit og dómnefnd einnig eina hljómsveit / tónlistaratriði.

Athugið að þegar öllum undankvöldum er lokið hefur dómnefnd möguleika á að velja hljómsveitir / tónlistaratriði áfram aukalega í úrslit. Möguleiki er því fyrir hendi að hljómsveit / tónlistarfólk komist áfram þrátt fyrir að hafa ekki farið áfram á sínu undankvöldi. Þetta verður tilkynnt á heimasíðu tilraunanna að loknum öllum undankvöldunum og einnig verður hringt í þær hljómsveitir sem um verður að ræða.

  • Á úrslitakvöldi er það eingöngu dómnefnd sem velur vinningshafa, en salur og áheyrendur kjósa um Hljómsveit fólksins.
  • Músíktilraunir eru ætlaðar ungu fólki á aldrinum 13 – 25 ára.
  • Framkvæmdarnefnd Músíktilrauna áskilur sér þann rétt að hafna hljómsveitum um þátttöku ef: Hljóðdæmi (demo) sem berst stenst ekki tónlistarlegar lágmarkskröfur sem gerðar eru til keppninnar, þátttökugjald hefur ekki verið greitt fyrir tilskilinn tíma eða af öðrum ástæðum.
  • 40 – 50 hljómsveitir geta tekið þátt á tilraununum á hverju ári.
  • Fagnefnd á vegum Hins Hússins mun síðan velja og samþykkja umsóknir sem standast inntökukröfur tilraunanna.

Athugið að notkun áfengis og annarra vímuefna er stranglega bönnuð og verði þátttakendur og gestir uppvísir um notkun þeirra er þeim tafarlaust vísað frá.

  • Ef eitthvað kemur upp á, t.d. ef að hljómsveit ætlar að hætta við, þá verður að tilkynna það strax á musiktilraunir@reykjavik.is.

Markmið:

  • Að veita ungum íslenskum hljómsveitum og tónlistarfólki tækifæri á að koma tónlist sinni á framfæri.
  • Að skapa vettvang fyrir unnendur tónlistar til að geta fylgst með ungum og efnilegum hljómsveitum og tónlistarfólki.
  • Að stuðla að því að fjölmiðlar skapi umræðu og kynningu í samfélaginu á ungu og upprennandi tónlistarfólki.
  • Að hvetja til textagerðar á íslensku.