Justin Case
Meðlimir:
Jóhannes Bjarki Bjarkason -16 Bassi/söngur
Greipur Garðarsson -17 Rafmagnsgítar
Guðmundur Sigurþórsson -17 Rafmagnsgítar
Gunnar Atli Davíðsson -17 Trommur
Um bandið:
Eitt sinn, fyrir langa löngu, reis úr iðrum jarðar hljómsveit. Sú hljómsveit hét Justin Time. Justin Time réðu öllum heiminum með harðri stjórn og miskunnarleysi. Einn daginn ákváðu þrír karlmenn og einn drengur að koma saman og binda endi á þessar þjáningar. Þeir kölluðu sig Justin Case. Justin Case og Justin Time börðust svo mikið að himinn og jörð skalf og nötraði. Eftir aldalangt stríð sömdu hljómsveitirnar tvær um frið og Justin Time gaf Justin Case gítarinn Stellu, sem þeir smíðuðu úr fimbulkulda og eldingum í eldum Helvítis. Justin Time dró sig í hlé en enginn veit hvert þeir fóru eða hvenær þeir koma til baka..
„Þeir eru bölvaðir pappakassar!“ heyrðist í Greipi, gítarleikara Justin Case.
Koma úr Grafarvoginum