Útrás
Meðlimir:
Þorgeir Björnsson -15 Bassi/söngur
Eiríkur Eduardo Eiríksson -16 Trommur
Um bandið:
Hljómsveitin Útrás var stofnuð í byrjun árs 2010 af Þorgeiri Björnssyni bassaleikara og söngvara og Eiríki Eduardo trommara. Upphaflega var hugmyndin sú að hljómsveitin yrði tríó, en eftir að hafa eytt heilu sumri í æfingar án gítarleikara var hljómsveitin fljótt farin að móta sinn eigin stíl sem dúett. Einnig var hugmyndin í byrjun að hljómsveitin myndi spila pönktónlist. En tónlistin eins og hún hefur þróast síðan þá mætti lýsa sem samblandi af ýmsum stefnum, þar á meðal mörgum gerðum innan málmgeirans. Þar á meðal frá black, thrash, death, groove og doom metali, auk þess að halda enn í rætur pönksins og klassíska rokksins.
Hljómsveitin hefur komið nokkrum sinnum fram opinberlega, meðal annars á Menningarnótt 2011, á tónleikum í Molanum með fleiri hljómsveitum og Kóparokk 2010 og 2011.
Koma frá Kópavogi