B.J. and the Army
Meðlimir:
Bjarmi Hreinsson -19 Píanó/söngur
Kjartan Ágúst Jónasson -18 Bassi
Helgi Týr Tumason -20 Gítar
Sigurður Óli Jónsson -19 Trommur
Um bandið:
B.J. & the Army er verkefni Bjarma Hreinssonar, píanóleikara. Hann fékk með sér til liðs vini sína úr Menntaskólanum á Egilsstöðum, en meðlimir koma víðsvegar af Austurlandi, Bjarmi frá Egilsstöðum, Siggi trommari frá Reyðarfirði, Helgi Gítarleikari frá Djúpavogi og Kjartan bassaleikari frá einhverjum sveitabæ. Hljómsveitarmeðlimir eru á aldrinum 18-20 ára og kom hljómsveitin fyrst saman fyrir skólatónleika í haust. Þaðan lá leiðin í upphitun fyrir Mugison tónleika á Egilsstöðum, en eftir það lagðist hljómsveitin í dvala þar til upp kom sú hugmynd að taka þátt í músíktilraunum.
B.J. & the Army ætlar sér stóra hluti í tónlistarbransanum og þykir ljóst að góður árangur í músiktilraunum myndi skila sér sem stórt stökk fyrir hljómsveitina.
Frá Egilstöðum