Cosmos
Meðlimir:
Jóhannes Helgi Friðriksson – Hljómborð/Tölva - 17
Viktor Franz Jónsson – Gítar - 17
Magnús Óli Sigurðsson – Gítar - 17
Um bandið:
Við mættum saman á fyrstu hljómsveitar æfinguna snemma í óktóber 2011 og erum búnir að æfa stanslaust síðan, við erum komnir með nokkur almennileg lög sem verða sett inná soundcloud strax og við verðum búnir að fara í upp í studio og taka upp gítarana inná lögin. Við erum 3 strákar úr kópavogi, ég (jóhannes) og viktor erum í MK en Magnús er í FG. Tónlistarstíllinn sem að við viljum ná að fullkomna ætti ég örugglega að lýsa sem Glitch-Experimental-Rock með smá áhrifum frá Ratatat í nýja dótinu okkar. Við spiluðum okkar fyrstu tónleika í Hinu Húsinu sem við redduðum okkur sjálfir á fimmtudagsforleik og svo strax eftir þá tónleika talaði Arnljótur sem vinnur í hinu húsinu við okkur og bauð okkur að spila á Hemma og Valda á Reykjavík Grapewine tónleikum ásamt öðrum hljómsveitum. Framundan eru náttla músiktilraunir og svo erum við að spila á Heiladans næstkomandi 17. mai þar sem félagi minn Árni Grétar heyrði dótið okkar á soundcloud og bauð okkur að spila, svo ætlum við bara að reyna spila eins mikið og við getum í allt sumar!
Frá Kópavogi