Kraumur með verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin
23.02.2012
Höldum áfram góðu samstarfi við tónlistarsjóðinn Kraum sem veitir verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin. Verðlaunin eru í því fólgin að verja degi í fullkomnu hljóðveri með hljóðmanni og reynslumiklum tónlistarmanni þar sem farið er í hinar ýmsu hliðar tónlistarsköpunar.