Discord

Sveitarfélag:Reykjavík
MySpace/Facebook: www.myspace.com/discordiceland
Nöfn og aldur:
Helgi Þorleksson 18 ára Trommari
Hjörtur Ólafsson 17 ára Gítarleikari
Hafliði Baldursson 18 ára Gítarleikari
Jón Haukur Pétursson 17 ára Söngvari
Þórður Hermannson 17 ára Bassaleikari
Um bandið: Í ágúst 2007 var hljómsveitin stofnuð undir nafninu Defiant Hatred, með Hafliða og Hirti á gítar og Lalla á trommur og spiluðu þá death metal með með áhrifum frá böndum á borð við Suffocation, Meshuggah, Defeated Sanity, Cephalic Carnage svo eitthvað sé nefnt.
Stefnan var sett á að spila tilraunakenndan Death Metal, og samin voru fimm lög, og var í plönum að gefa út demo í enda 2007.
Í byrjun 2008 gekk Jonni til liðs við bandið sem söngvari og var þá nafninu breytt í Discord, og fór stefnan að þróast úr Death metal yfir í psychedelic þungarokk. Var Atli ráðinn á bassa stuttu seinna. Í kjölfar komu Atla og stefnubreytinga var gömlu lögunum hent, og var hafist handa við að semja nýtt efni. Til að byrja með gekk erfiðlega að semja, og var mörgum hugmyndum kastað á milli, á endanum voru nokkur uppköst saminn sem þróuðust svo yfir í lögin Machinations of Torment, og Assemble the Fragments, og var Discord búið að þróast úr Technical Death Metal yfir í melódískari experimental metal.
Vegna persónulegs ágreinings hljómsveitarmeðlima skildust leiðir við Atla og Lalla, og var Þórður ráðinn á bassa og Helgi á trommur. Við komu Helga færðist hljómur hljómsveitarinnar en fjær death metal soundsins, og í stað extreme metal takta Lalla voru komnir hægari og progressívari taktar.
Hljóðdæmi:
Machinations of Torment, The great unclean one