Músíktilraunir 2009



Captain Fufanu

 

Sveitarfélag: annar úr Reykjavík og hinn frá Þorlákshöfn.

MySpace/Facebook: www.myspace.com/captainfufanu

Nöfn og aldur:
Hrafnkell Flóki Einarsson (16 ára): Hljómborð, trommuheili, forritun og trompet.
Guðlaugur Halldór Einarsson (16 ára): forritun, trommuheili,gítar,hljómborð.
  
Um bandið:
Meðlimir Captain Fufanu koma úr ólíkum áttum, annar úr Reykjavík og hinn frá Þorlákshöfn. Þrátt fyrir mismunandi uppeldisstað eiga þeir það sameiginlegt að hlusta á sömu tónlist og hafa sömu ástríðu fyrir henni.
Kveikjan að Captain Fufanu kom þegar að Hrafnkell og Guðlaugur kynntust í sínum fyrsta tíma á listnámsbraut í Borgarholtsskóla og komust afþví að þeir hlustuðu á nákvæmlega sömu tónlist. Út frá því fóru þeir að spila saman í skólanum og áður en þeir vissu af voru þeir komnir í æfingarhúsnæði og með 30 lög.
Captain Fufanu spilar danstónlist undir áhrifum elektróníku. Um leið og bandið var orðið formlegt ákváðu meðlimir að þeir ætluðu að sleppa söng, en þrátt fyrir söngleysi ætluðu þeir að reyna tjá og sýna sömu tilfinningar og hin vinsælu pop bönd. En hver veit nema að það komi söngur á næstunni.
Captain Fufanu tók nýja árið með trompi og hefur spilað á þó nokkrum tónleikum. Meðal annars á Bar Cultura, Kafka, Fimmtudags forleik og balli á vegum Gufunesbæjar.
Á tónleikum spilar hljómsveitin eins mikið og mögulegt er. En allar melódíur eru spilaðar af Hrafnkatli en Guðlaugur sér um undir- og gítarspil. Það er kannski rétt að taka það fram að allar tónlínur eru samdar og teknar upp af Captain Fufanu.

Hljóðdæmi:
Mystique, The Lake Through Lake-Town